Um mig

Coach Eggert
Árið 2017 byrjaði ég að vinna sem þjálfari til þess að geta æft 2x á dag.
Árið 2018 þurfti ég að velja á milli þess að keppa sjálfur á sterku móti eða hjálpa krökknum sem ég var að þjálfa, í undankeppni fyrir heimsmeistaramótið í CrossFit. Valið var auðvelt.
Síðan þá hef ég varla gert neitt annað en að þjálfa fólk, bæði í persónu og á netinu.

Allt saman
Ég hef því þjálfað fólk frá aldrinum 5 ára alveg upp í 90 ára.
og ég þjálfað fólk sem er að stíga sín fyrstu skref í ræktinni alveg upp í atvinnufólk í íþróttum.
Það sem ég hef lært með þessu öllu er hvernig það á að hjálpa hvaða manneskju sem er bæta styrk og þol.
Ólympískar lyftingar
Ég hef þjálfað ólympískar lyftingar í mörg ár. Þessi íþrótt snýst mikið um nákvæmni hreyfinga og hvernig þú nýtir styrkinn þinn í flóknum hreyfingum. Þessi íþrótt hefur kennt mér að allir geta orðið sterkari, hreyft sig betur og að smá atriðin skipta miklu máli.
Eðal
Í nokkur ár þjálfaði ég Eðal hópinn í CFR þar sem fólk á eftirlaunaaldri stundar hreyfingu. Þar lærði ég að ALLIR hafa gott af styrktar- og þol-þjálfun. Þar lærði ég einnig hvernig á að móta æfingar og hreyfingar að hverjum sem er.
Krakkar og unglingar
Stórann part af mínum þjálfaraferli hef ég aðalega þjálfað krakka og unglinga. Það er virkilega krefjandi að kenna krökkum og unglingum að hreyfa sig vel. Þetta var því frábær staður til þess að verða enn betri þjálfari og þróa kerfi til þess að kenna hverjum sem er að hreyfa sig vel
CrossFit
Ég byrjaði minn þjálfaraferil sem þjálfari í Crossfit Reykjavík. Þar lærði ég að þjálfa fullt af mismunandi hreyfingum. Þar lærði ég einnig að allir geta orðið sterkar og komist í betra form.
Þjálfaraferillinn